Komin tími til!!!

kids_sunshineMér þykir nú komin tími til að fá langa helgi einu sinni til tilbreytingar!!!

Er orðin agalega þreytt á að vakna eldsnemma á morgnanna til að fara í vinnu.... get ekki beðið eftir sumarfríinu mínu!!!

Ekki að mér líki ekki vinnan mín... en maður má nú aðeins slappa af!

Ég ætla að gera ógeðslega mikið í sumarfríinu mínu 

  • vera heima hjá mér og lesa bók og gera bútó og sitja úti á palli (sem við erum að rembast við að halda áfram með) og njóta þess að vera til.
  • fara til Marmaris og Rhodos og lifa lífinu með tærnar upp í sólina.
  • kannski fara á Sauðárkrók með Guðný á fótboltamót (af því að ég kemst ekki til Akureyrar með Guðmundi Tómasi, Guðný missir af símamótinu í Kópavogi og ég verð að fara á eitt mót!).
  • í brúðkaup... ji, í hverju ætla ég að vera... hvað á maður eftir að komast í í júlí!!!
  • labba um allt
  • vera á pallinum hjá múttu og pop.
  • fara á þjóðhátíð og slá í gegn á sunnudagskvöldinu okkar vinkvennanna.
  • uppfarta í brúðkaupi... verð nú örugglega að fjárfesta í einhverju í ágúst til að vera sómasamleg til fara.
  • og allt hitt sem ég er að gleyma!!!

Er farin að efast um að ég komi þessu öllu fyrir á 29 vinnudögum... hehehe


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Og væntalega að fara til útlanda eða hvað er það farið af dagskránni. Og vera brún og sæt eftir það . Og kannski slappa bara vel af þar sem að þú ert alltaf á útopnu ;)

Arndís Ósk Atladóttir (IP-tala skráð) 28.5.2007 kl. 00:33

2 Smámynd: Sigþóra Guðmundsdóttir

Jú, útlönd hér kem ég... Marmaris og Rhodos! Og JÁ brúna bumbu og allt hitt líka!!! Á nú eftir að fá leyfi til þess frá Drífu ljósu!!!

Veit ekki hvort ég kunni að slappa af... heheheheh

Sigþóra Guðmundsdóttir, 28.5.2007 kl. 13:59

3 identicon

Nei verð eiginlega að vera sammála þér þarna neðst þú kannt pottþétt ekki að slappa af en það er skipun frá mér að það verði samt helmingurinn af sumarfríinu aflöppun ;)

Arndís Ósk (IP-tala skráð) 28.5.2007 kl. 22:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband