Mesta hættan!!!

Það held ég að sé mesta hættan á að allir krakkar "ákveði" að verða samkynhneigðir af því að sá fjólublái er svo GAY!

Leynileg vísun eða ekki... handtaska, tvinkí - kinkí - vinkí, hverjum er ekki sama. Má ekki vera einn samkynhneigður í barnaefni? Ég meina þessi græni er líka aðeins brúnni en hinir... Verður það þá til þess að þeir sem eru dökkir á hörund verða pottþétt ekki öfugir (má nota það orð?)?

Eigum við ekki að vona að það komi sá tími að allir fái að vera eins og þeim líður best???

Alltaf sorglegt að sjá "aðrar" þjóðir langt á eftir "okkur hinum"... eða erum við kannski ekkert betri???


mbl.is Pólsk yfirvöld rannsaka hvort Stubbarnir séu samkynhneigðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvað er málið  með þetta lið ...... átti Tinni ekki líka að vera samkynhneygður og Ástríkur og Steinríkur . Ég held að börn sem eru að horfa á þetta eins og t.d Stubbana er meðal aldur um 1 1/2 til fimm  og þau eru ekki að velta þessu fyrir sér , þau horfa á litina og hlusta og læra orðin frekar en að vera að spá í hvort að hann sé með kvennmanns tösku . Tinni meðal aldurinn sem hofði og las þetta var 7-11 ára strákar að mestu  , þá vilja þeir ævintýri ekki einhvern gaur með kærustu upp á armin . Mér finnst þetta eitt það mesta kjaftæði sem að ég hef lesið í lengri tíma eða síðan þetta kom líka upp með Tinna. 

Arndís Ósk (IP-tala skráð) 28.5.2007 kl. 22:20

2 identicon

ó guð nú er mikil hætta á að katrin sara verði hommi! úff hvað skal móðir gera?? Hún horfir á þetta...jiii hvað hef ég gert?

fólk er fífl!!

Sunna (IP-tala skráð) 30.5.2007 kl. 13:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband