Bloggfærslur mánaðarins, október 2006

Furðudagur

Við vöknuðum við vekjaraklukku barnanna kl. 6,35 í morgun, okkur til mikillar gleði. Þau voru svo yfirsig ánægð með komandi skóladag. Í dag er nefnilega furðufatadagur.

Guðmundur Tómas fór í fötum af Guðný, sokkabuxum, bleikum legghlífum, bleiku pilsi, bleikum bol og bleikri peysu, með bleika skupplu á höfðinu og varalit á vörunum.

Guðmundur Tómas þreyttur

Guðný fór í fötum af Guðmundi Tómasi, svörtum flauelisbuxum, blárri skyrtu, bindi, með hárið sleikt til baka, með málaðan hökutopp, yfirvaraskegg og dekktar augabrýr.

 Guðný að springa úr gleði!

Og strákarnir (stelpurnar) hennar Önnu Lilju voru ekki síðri... sem tvær úr tungunum!!!

sjórinn og stelpurnar mínar 030

Skrítið hvað einn lítill viðburður getur gert lífið svo mikið, mikið betra...

 


Brúðarkjólaleiga og mini-gæsun!

Ég og fjölskyldan fórum í borgina yfir helgina, átti víst eftir að gera ýmislegt fyrir þar næstu helgi (vá hvað tíminn líður). Klára að kaupa skraut, finna föt á mig, Geir og Guðmund Tómas, finna skart og blablabla og það sem því fylgir. Það sem ég reiknaði með að myndi taka alla helgina tók rétt tæpa tvo tíma!!! Geri aðrir betur! 

Ég fór til Önnu Kristínar frænku og hún hjálpaði eins og hún gat með því að rétta mér kjóla á færibandi og svo voru Ragna Jenný og Sunna ósparar á þeirra skoðanir!  Endaði á að taka fyrsta kjólinn sem ég mátaði á leigu!

Fór með Rögnu Jenný á kaffihús þar sem hún læt mig fá þvílíkt í magann... ég skrapp á klóið og þegar ég kom aftur fram var Ragna staðin upp og spurði hvort við ættum ekki að fara að haska okkur... Jújú ekkert því til fyrirstöðu. Svo þegar við erum komnar út þá segi ég... ji ég borgaði ekki og Ragna sagði HLAUPUM!!! Ég fraus alveg... Nei... Þá sprakk hún og sagðist vera búin að borga... Hehehe og ég með þvílíkan hnút í maganum yfir öllu saman. Hhehehe.

Um kvöldið buðu Beta og Ragna mér svo út að borða... í minigæsun. Þær gáfu mér Bubba... en ég á hann!!! hehehe Við borðuðum á Austur India fjelaginu og það var geggjað... fengum okkur Cosmopolitan í fordrykk, Mojito í eftirrétt og þvældumst um miðbæinn í hláturskasti...

Við skvísurnar að skála á Austur Indía!!!

Hringdum svo í Geir og báðum hann um að sækja okkur... hvort hann væri ekki geim í það... Jújú, hvert átti að sækja okkur!? Hann fékk þá svarið... EKKI STRAX... hringi attur á ettir. Vinsælar, hehehe.

Hringdum svo aftur þegar við vorum til í að fara heim... og Geir skutlaði Betu og Rögnu heim... nánast út í Straumsvík sagði Geir.

Við fórum svo í bíó með Dagný og Jón Inga, tókum Mýrina.  Hún greip mig alveg með sér... mér fannst ég nýsest þegar hléið kom... mér finnst stundum agalegt að hafa hlé... í þessu tilfelli var verið að byggja myndina upp og þá er bara ýtt á pásu... PISSUHLÉ!!!

Eftir hlé leið eins og fimm mínútur... og ég er held ég bara sammála þeim sem sagði að ef einhvern tímann hefur verið séns á að íslensk mynd fái Óskarinn þá er það núna!!! Ég var nefnilega bara skíthrædd um hvað mér myndi finnast... um leikaranna og annað en já sá ekki eftir 4000 kallinum sem bíóferðin kostaði!!!


Erum við Eyjamenn komnir með sjálfstæði???

Ég hef alltaf vitað að við værum spes... og jú sumir segja að við séum eins og sér þjóðflokkur... en ef MBL segir að við séum af erlendu bergi brotin þá hlýtur það að vera satt. Ekki lýgur Mogginn!!!

Annars var svakalegt að sjá Gandí upp á rönd. Fékk sting í hjartað og vonaði það besta... víst nóg af áföllum búin að vera hjá okkur undanfarið. Ég viðurkenni vel að það fyrsta sem mér datt í hug var að kanna hvort allt í lagi væri með hann Malla hennar Ingu minnar, hringdi beint í hana og hún vissi nú að allt í lagi væri með manninn sinn... hann sat jú við hliðina á henni og vissu ekki meir!

Flashback-ið frá því að ég var að vinna í lyftunni... við að taka upp skipin og sjósetja ásamt því að mála skipin hátt og lágt!

En Guð hvað ég er glöð að engin skyldi slasast alvarlega... má segja að betur hafi farið en á horfðist! 

Gandí upp á rönd

Og hér er ein sem Geir tók í dag!

Gandí


mbl.is Meiddist í baki þegar skipalyfta gaf sig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Komin á fætur!!!

Nú er ég komin á fætur, á að hreyfa mig og ég er ekki í neinu úthaldi!!! Fer ekki vel með úthaldið að liggja í 10 daga!!! Hugsa að ég verði bara með fráhvarfseinkenni... farin að garga á rúmið í kvöld!!!

Er komin á lyf sem eiga eftir að láta mér líða illa áður en mér fer að líða betur!!! Og svo er það bara doksi aftur á mánudaginn!!!

Eníhús!!! Ég er búin að horfa á Friends þessa tíu daga... komin á níundu seríu. Geri aðrir betur... Búin að lesa lítið... ein heil bók og tvær hálfar!!! Reyndar er ein af þessum bókum svona sem ég gríp í svona öðru hvoru... ég er búin að sauma smá út, ekki mikið!!!

Núna langar mig svakalega að baka handa börnunum... vera með heita köku handa þeim þegar þau koma úr skólanum, af því að þau eru búin að vera svo yndisleg við mig þessa tíu daga!

Nú hefst undirbúningur fyrir brúðkaup og að vinna upp alla vinnuna sem hefur safnast upp... reyndar kom í ljós að ég hef yndislegt starfsfólk sem er búið að keyra starfið eins og ekkert hafi í skorist!!!

Until next tæm!!! Farið vel með ykkur!!!


GOne-er!

Farinn að hitta doksa... vona það besta en búin undir það versta!!!


ÓMÆGAD

Ég hef komist að því að það er líklegast ekkert mál að deyja úr leiðindum. Í dag nenni ég ekki einu sinni að lesa! Ég nenni varla að skrifa þessar línur... Fýldur

Finn fyrir vaxandi þörf á að sjá ný andlit... og þessi gömlu náttúrulega líka. Öskrandi

Ég ætla að eiga 20 börn... þá eru einhverjar líkur á að eitthvert þeirra hafi tíma aflögu til að koma til manns daglega þegar maður verður gamall og komin á Elló!   

Gamla fólkið

Og heyrðu Matta... ég frétti af gömlum kellingum í handboltahugleiðingum í íþróttahúsinu á þriðjudagskvöldum... enduðu víst í badminton í gær af því að þær voru svo fáar!  Aldrei að vita nema hægt sé að blikka þær líka í öðruvísi bolta öðru hvoru!!!Glottandi


Jamm og jájá!

Hvað get ég nú sagt ykkur spennandi???

Las Hroki og Hleypidómar eftir Jane Austin, bók skrifuð um 1810 og mér fannst hún yndisleg. Gaf manni sýn inn í heim aðalsins á Bretlandi á þessum tíma. Hvernig líf kvenna byggðist á að giftast rétt... og að fjölskyldan varð allslaus við fráfall föðurs, ef ekki fæddist honum sonur.

Mikið má maður nú þakka fyrir baráttu kvenna og karla um jafnrétti kynjanna hingað til... þó að skrefið sé ekki stigið að fullu þá erum við greinilega í betri málum en konur á 19. öldinni!

And now, for something completly different!

Ég er búin að missa 4 kíló á einni viku... á því að liggja og horfa á kassann. Held samt að það sem skipti sköpum hafi verið að ég hef ekki nokkra matarly/ist (hvort er það).  Borða á við ungabarn og er að drepast í maganum á eftir... borðaði 10 vínber og var að springa eftir þau!!! Geri aðrir betur! Ef ég verð svona til lengdar verð ég komin í kjörþyngd fyrir brúðkaup!


AÐ deyja ekki úr leiðindum!

Það er misjafnt hvað við gerum í frítíma okkar til að njóta lífsins. Ég hef gaman af því að bútasaumast, fara í fótbolta, kíkja í kaffi til vina og ættingja, lesa bækur, sauma í, glápa á góðar ræmur, fá vini og ættingja í heimsókn, þvælast um netið og taka myndir... ásamt mörgu öðru. Það sem er í hávegum haft þessa dagana er að þvælast um netið, lesa bækur, sauma í, glápa á góðar ræmur og fá vini og ættingja í heimsókn.  Það versta er að þetta er ekki gert á mínum forsendum!

Ég get ekki hellt uppá fyrir fólkið sem kemur, það verður að gera það sjálft... og yfirleitt er þetta sama fólk komið á fullt að ryksuga, ganga frá þvotti, setja í þvottavél og setja í uppvöskunarvél, það er víst verulega takmarkað sem ég frétti... og því ekkert nýtt uppúr mér að draga!

Ef það er ekki á netinu þá veit ég það ekki! Vinir mínir eru ekki nógu duglegir að blogga fyrir mig... helst vildi ég fá fréttir tvisvar eða þrisvar á dag!!!

Verst að sófinn er ekki með fjarstýringu... þannig að ég gæti rúllað mér í eldhúsið til að hella upp á, ganga frá eftir hádegismatinn... sem ég bæðevei borða liggjandi í sófanum.

En mikið má ég þakka fyrir fólkið í kringum mig... sem nennir að láta sjá sig, bara til að sitja hjá mér... þó ég hafi ekkert að segja. Pabbi og Geir eru búnir að vera að klára að ganga frá úti, á meðan mamma er búin að tryllast í þvottahúsinu og fataherberginu, Berglind mágkona kom og ryksugaði allt, Inga frænka kom að spjalla og henti í þvottavél í leiðinni, Anna Lilja reddaði kjötinu í brúðkaupið og kom því í kistuna...

Geir kom svo heim með gjöf handa mér í dag "í tilefni dagsins"... alla vega sagði hann: "Til hamingju með daginn!" og rétti mér DVD með tónleikum Phil Collins. Ég veit ekki enn hvaða dagur er í dag!!!

Og svona til að loka deginum... þá mæli ég ekki með því að fólk skipuleggi brúðkaupið sitt úr rúminu eða sófanum!!! Sérstaklega ekki ef þú ert ekki búin að velja kjólinn!!! 

Ætli maður verði ekki svona!!!


Myndir, myndir og aftur myndir!!!

Nú er ég búin að setja tengla hægra megin á síðuna á alvöru myndasíðurnar mínar!Hlæjandi 

Þessa tók ég í sumar og er bara lítið sýnishorn...Guðmundur Tómas að koma heim úr keppnisferðalagi í sumar! (Hann er í flugvélinni)

 


Börnin mín!!!

Ég er stolt móðir í dag.

Börnin mín tvö voru að koma heim af lokahófi knattspyrnusumarsins og komu bæði með verðlaun heim!

Guðmundur Tómas var verðlaunaður með ÍBVaranum, sem er verðlaun fyrir að vera góður fyrir hópinn, áhuga á æfingum og að leggja sig fram fyrir liðið.

Guðný var verðlaunuð fyrir að taka mestar framfarir á árinu! Svo fékk hún verðlaunapening um hálsin fyrir þriðja sætið á íslandsmótinu.

Má mamma ekki vera stolt af kjúklingunum sínum!!!???


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband