ÓMÆGAD
11.10.2006 | 13:17
Ég hef komist að því að það er líklegast ekkert mál að deyja úr leiðindum. Í dag nenni ég ekki einu sinni að lesa! Ég nenni varla að skrifa þessar línur...
Finn fyrir vaxandi þörf á að sjá ný andlit... og þessi gömlu náttúrulega líka.
Ég ætla að eiga 20 börn... þá eru einhverjar líkur á að eitthvert þeirra hafi tíma aflögu til að koma til manns daglega þegar maður verður gamall og komin á Elló!
Og heyrðu Matta... ég frétti af gömlum kellingum í handboltahugleiðingum í íþróttahúsinu á þriðjudagskvöldum... enduðu víst í badminton í gær af því að þær voru svo fáar! Aldrei að vita nema hægt sé að blikka þær líka í öðruvísi bolta öðru hvoru!!!
Athugasemdir
Ekkert svona að ætla að ráðast inn á okkar svæði með fótbolta. Jú jú ég held að það eigi að blanda þessu eitthvað án þess að ég sé alveg viss hvað fer þarna fram.
Fæ bara að vera með þessum gömlu kellum Írisi og þeim haha
Anna Lilja (IP-tala skráð) 11.10.2006 kl. 13:47
Líst vel á það... komin með fiðring í lappirnar ;o)
Kv. Matta
Matta (IP-tala skráð) 12.10.2006 kl. 08:51
ohhh. hvað ég væri til í að vera með ykkur gömlu skvísur...:)
Ragna Jenný Friðriksdóttir, 12.10.2006 kl. 09:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.