Veikindi á sumrin!!!

Ég er búin að vera veik síðan á þriðjudagskvöld! Hiti, beinverkir, hausverkur, kvef, ógleði og allt sem hægt er að láta sér detta í hug held ég!

Búin að horfa á Ólympíuleikana, 4. seríu af Greys og Ólympíuleikana!!!

Varla haft kraft til að fagna með Íslenska landsliðinu (veit að það á að skrifa íslenska með litlum staf... en mér finnst þeir eiga stórann staf skilin) en legg mig þó alla fram og sef á milli!

Breytingar eru í loftinu í vinnunni og verð ég að viðurkenna að ég er ekki sátt! Læt þetta bíða þar til allt er komið á hreint hjá meirihlutanum!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hjördís Inga Arnarsdóttir

Við öldruðu hjónin erum lika búin að vera lasin mjög samtaka í þessu Ingimar enn slappur enda var hann þjóra í gærkvöldi  en ég er hressari samt erfitt að fara í þvottahúsið enda hólarnir háir búin með toppana þarf hvort eð er að vakna semma í fyrramálið næ að klára þá á morgunn ef ég verð dugleg

Hjördís Inga Arnarsdóttir, 23.8.2008 kl. 16:19

2 Smámynd: Sölvi Breiðfjörð

Þessar hagræðingar eru út í hött og veit ég fyrir víst að þú ert ekki sú eina sem í þessu lendir, held að þetta lið ætti bara að byrja að lækka launin eða stytta vinnutímann hjá sjálfum sér heldur en að ráðast á þá sem mynni laun hafa.   Vonandi fer þér að batna

Sölvi Breiðfjörð , 29.8.2008 kl. 16:06

3 identicon

úff ég vona sko að ég fái ekki þessa hrikalegu sumarpest sem hefur verið að angra þig svona rosalega og komið í veg fyrir blogg.

baráttukveðja með vinstri ;)

Jórunn Einarsdóttir (IP-tala skráð) 6.9.2008 kl. 23:40

4 identicon

Klukk klukk

Ragnheiður Ástvaldsdóttir (IP-tala skráð) 10.9.2008 kl. 21:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband