Börnin mín!!!

Ég er stolt móðir í dag.

Börnin mín tvö voru að koma heim af lokahófi knattspyrnusumarsins og komu bæði með verðlaun heim!

Guðmundur Tómas var verðlaunaður með ÍBVaranum, sem er verðlaun fyrir að vera góður fyrir hópinn, áhuga á æfingum og að leggja sig fram fyrir liðið.

Guðný var verðlaunuð fyrir að taka mestar framfarir á árinu! Svo fékk hún verðlaunapening um hálsin fyrir þriðja sætið á íslandsmótinu.

Má mamma ekki vera stolt af kjúklingunum sínum!!!???


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vertu stollt af þeim elskan mín og til hamingju með árangurinn. Það hrynja yfir ykkur verðlaunin þessa vikurnar hahahaha.
Knús og kossar
Dóra Björk

Dóra Björk (IP-tala skráð) 3.10.2006 kl. 21:17

2 identicon

Til hamingju með þau dúllan mín.
Eiga ekki langt að sækja hæfileikana.
Maður á að vera stoltur af börnunum sínum, ef við erum það ekki hver er það þá. Við erum forríkar og eigum að njóta þess. Love you
Þín Anna Lilja

Anna Lilja (IP-tala skráð) 3.10.2006 kl. 21:56

3 identicon

Þetta eru náttúrlega bara snillingar...:) Eins og mamma sín.................

Ragna Jenný (IP-tala skráð) 4.10.2006 kl. 00:22

4 Smámynd: Ragna Jenný Friðriksdóttir

Já og til hamingju með krúttin......

Ragna Jenný Friðriksdóttir, 4.10.2006 kl. 00:31

5 identicon

Til hamingju með þau krúsí pjúsí.....kysstu þau frá Búó

Berglind (IP-tala skráð) 4.10.2006 kl. 08:57

6 identicon

til lukku með rækjurnar verð að kíkja á ykkur,,
knús og kossar Inga frænka..........

Inga Magg (IP-tala skráð) 4.10.2006 kl. 11:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband