Breiðuvík

Hroðalegir staðir kalla á hroðalega umræðu. Varla að maður komi einhvers staðar inn þar sem ekki er talað um upplifanir fólks við að sjá fullorðna menn sem enn eru að takast á við það sem gerðist í þeirra lífi þegar þeir voru óharðnaðir unglingar eða bara börn! Umfjöllunin varð til þess að maður skammaðist sín fyrir stjórnvöld landsins, að börn hafi verið tekin af heimilum sínum, sum hver agaleg heimili... en þó töluvert betri en það umhverfi sem tók við.

Sonur minn, á tólfta ári, sat og horfði með mér og pabba sínum í gærkvöldi á Kastljósið... Hann eins og fleirri átti ekki orð, spurði okkur út í allt sem sagt var, trúði ekki eigin eyrum lýsingar á þeirri vonsku sem fór greinilega fram á staðnum. Í miðjum þætti stóð hann þó upp og gat ekki horft á meir.

Það sem kom hvað mest á óvart í þessari umfjöllun var hvað unga fólkið sem við var talað, skilaði heilsteyptum og skilmerkilegum svörum til spyrjenda þáttarins. Þroskuð svör og maður einhvern vegin fylltist stolti yfir unga fólki þjóðarinnar! Þetta er fólkið sem ég hélt að væru horfin í hugsun efnahyggjunar en fáir töluðu um að láta mennina fá greiddar bætur... nema þá í formi hjálpar, sálfræðihjálpar, áfallahjálpar eða hvaða hjálpar sem þeir þurfa á að halda.

Sumir þessara manna hafa komist yfir þetta, líkast til fengið sína hjálp í gegnum fjölskyldur og vini. Aðrir hafa greinilega aldrei fengið neina hjálp...

Eigum við ekki að vona að batnandi þjóð sé best að lifa!?!

Vona að þeir sem sjái um málefni barna af brotnum heimilum séu meðvitaðri um þær hættur sem geta verið til staðar fyrir þessi börn.

Vona að þeir sem taki að sér börn geri það af manngæsku en ekki öðrum kenndum!!!

Ég er enn að reyna að ná tökum á hugsunum mínum... á erfitt með að trúa þeirri illsku sem getur búið í manninum og sprettur upp við það eitt að fá völd.... á erfitt með að trúa því að hægt sé að loka augum fyrir því hvað er í gangi á næsta heimili... á erfitt með að sætta mig við það að börn séu látin sæta andlegu og líkamlegu ofbeldi án þess að fólk láti í sér heyra, bara af því að einhver gæti orðið fúll út í mann... Ef við teljum að barn sé vanrækt, sæti einhvers konar ofbeldi þá er okkur skylt að tilkynna það. Hvað ætlum við að gera ef í ljós kemur að grunsemdir okkar voru réttar? Og við gerðum ekkert??? Er ekki betra að hafa látið í ljós áhyggjur sínar við rétta aðila, að láta þá aðila sem eru að vinna við þessi mál, kanna málin?

Það sem getur gerst er að við höfðum rangt fyrir okkur og við getum því hætt að hafa áhyggjur! EÐA að barnið fær þá hjálp sem það þarf!!!

Við getum líka valið að segja ekkert, látið samviskuna naga okkur að innan... og í versta falli fengið staðfestingu á að við hefðum ÁTT að gera eitthvað!!! Og þá kannski of seint!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

jú ég held að það sé nefnilega málið... batnandi þjóð er best að lifa... og við búum í batnandi þjóðfélagi. Við drögum ekki lengur fyrir gardínurnar og lokum augunum fyrir því sem gerist í kringum okkur... við látum hlutina skipta okkur máli og við samþykkjum ekki að börnum og þeim sem minnst mega sín sé misþyrmt á sál og líkama. Góður pistill hjá þér mín kæra... Knús

Sigurlaug Lára (IP-tala skráð) 9.2.2007 kl. 17:28

2 Smámynd: Ragna Jenný Friðriksdóttir

Það er ótrúlegt hvað börnin þurfa oft að þola...  Og svo virðist þjóðfélagið bara gúddera ofbeldi gagnvart börnum, já og konum því mér sýnist sem svo að það sé ekki saknæmt að brjóta gagnvart þeim.  Allavega fá þessir skíthælar sem misnota börn, berja konur og nauðga ansi væga dóma.. 

Ragna Jenný Friðriksdóttir, 10.2.2007 kl. 09:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband