Undarleg fyrirsögn!!!
15.10.2007 | 14:41
Ég hélt að búið væri að metta íslenskan markað með heitum pottum en neinei fréttin er um það að ekki sé að draga úr eftirspurn á fiskibátum!!!
HMMMM.... Það er kannski bara ég sem sé ekki samhengið!
Annars er ég á leiðinni í klippingu með allt stóðið... ekki að það sé fréttnæmnt, kannski fyrir utan það að ég þurfti ekki að snúa svo mikið upp á handlegginn á syninum til að fá hans samþykki fyrir skerðingu á hárinu á höfði hans. Honum finnst þetta bara tímaeyðsla og óþarfi... ég má víst þakka fyrir... sumir jafnaldrar komnir með strípur og nota dýrara efni í hausinn á sér en fyrirsæturnar!!!
Þurfa ekki að auka framleiðslu á heitum pottum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Hlusta alla leið
Siggi (IP-tala skráð) 16.10.2007 kl. 00:43
Les fréttirnar, þoli ekki þessar sjálfvirku auglýsingar við það að smella á frétt... en er ekki reiknað með að fólk lesi fréttir nú til dags??? Reyndar kemur fram á síðustu metrunum að þeir þurfi ekki að snúa sér að frekari heitu potta framleiðslu... en það kemur hvergi fram í textanum. Hef á tilfinningunni að blaðamaður hafi ætlað að vera fyndinn með fyrirsögn sinni!
Sigþóra Guðmundsdóttir, 16.10.2007 kl. 01:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.