Já, góðan daginn!
28.9.2006 | 13:18
Nú er afmælishryna að ganga yfir fjölskylduna mína! Og maður man eftir helmingnum... ef maður hringir í réttann aðila! Ég fékk til dæmis hamingjuóskir á afmælisdegi Bjarna Ólafs, syni Jónu sys!
Annars er allt bara ljómandi að frétta! Ég er enn að drepast í maganum... það breytist ekki. Og bakið er eitthvað að hrjá mig þessa stundina... ætla að henda mér í pottinn hjá múttu í dag!
Er á leiðinni í borgina með unglingaráð Féló á Landsmót Samfés. Það verður örugglega ljómandi hreint gaman!!!
Undanfarnir dagar hafa einkennst af kertasýki... og ég virðist hafa týnt nennunni til að gera eitthvað á heimilinu, setja í þvottavél, taka úr uppvöskunarvélinni og þess háttar!!! Þarf endilega að plata Geir í málin með mér einn daginn og taka húsið í gegn!!! Ekki nenni ég því ein...!
Athugasemdir
Nennarinn sveif yfir mig í dag svo ég er búin að öllu þannig að ég sendi hann rakleiðis til þín :)
Kv. Stefanía
stefanía (IP-tala skráð) 30.9.2006 kl. 23:36
Halló kalló bimbó hvernig gengur í undirbúningnum mar er að fylgjast með heðan frá dk og bíð spennt eftir næstu fréttum um málið. Og Geir farðu að taka til.
Kveðja Inga frænka
Inga frænka í Dk (IP-tala skráð) 2.10.2006 kl. 16:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.