Veisluhöldin búin í bili!
14.1.2008 | 02:20
Stelpupartýið hennar Guðnýjar gekk vel en mikið var gott þegar allir voru farnir heim!
Mér telst til að ég hafi haldið um 6 veislur/hittinga á undanförnum mánuði!
Bekkjarafmæli fyrir Guðmund Tómas í byrjun des, sameiginlegt 10 og 12 ára frænku- og frændaafmæli fyrir Guðný og Guðmund Tómas miðjan des, skírn og skírnarveislu á afmælisdaginn hennar Guðnýjar (daginn fyrir Þorláksmessu), svo var náttúrulega aðfangadagur haldin hátíðlegur á heimilinu með matargestum og svo bættust við gestir eftir pakka í eftirréttinn, ég hóaði í vinkonurnar í smá osta og rauðvín á milli jóla og nýárs og svo vinkonuafmælið hennar Guðnýjar um helgina sem er að líða!
En ég er svo heppin að eiga góða að og svo finnst mér ekkert leiðinlegt að hafa húsið fullt af fólki og bara gaman að gefa gestum að borða!
Athugasemdir
Heyrðu, ég er að sjá það núna... af hverju er myndin svona óskýr en svo ef maður smellir á hana þá er hún skýr!!!???!!!
En takk Beta mín! Við reynum
Sigþóra Guðmundsdóttir, 15.1.2008 kl. 00:02
Sæl Sigþóra mín
Ég var nú í tveimur veislum hjá þér um jólin og það er alltaf jafn gott að koma til ykkar. Þú ert ekki í vandræðum með að galdra fram e-ð gott að borða og þó maður ætli bara rétt að kíkja kemst maður aldrei út fyrr en eftir nokkra klukkutíma. Takk fyrir að vera þú sjálf.
Dóra Björk
Dóra Björk (IP-tala skráð) 15.1.2008 kl. 16:07
Já sannkallaður orkustrumpur ertu!!!!
En það er greinilegt að þú hefur nóg af góðu fólki í kringum þig, enda ertu bæði sæt og skemmtileg... :)
Ragna Jenný (IP-tala skráð) 16.1.2008 kl. 12:20
Takk stelpur, þið eruð svo náttúrulega alltaf velkomnar, boðnar eða óboðnar! Sérstaklega ef þið eruð svona ósparsamar á hrósin (endilega kommentið oftar... maður er bara farin að fljóta um á rósrauðu skýi) Hahaha... Þið eruð líka æðislegar, allar!!!
Dóra Björk... ég tók nú ekkert sérstaklega eftir því að þú hafir verið eitthvað yfirgengilega lengi að koma þér út, enda máttirðu vera eins lengi og þú vildir
Ragna Jenný... veit ekki hvað fríðleiki minn kemur málinu við en þakka þér samt fyrir að minnast á hann
Sigþóra Guðmundsdóttir, 17.1.2008 kl. 08:02
Það er bara ekki hjá því komist.....:)
Ragna Jenný (IP-tala skráð) 17.1.2008 kl. 17:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.