Veó veó!
16.11.2007 | 13:43
Komin heim aftur!
Ekkert gengur með að ýta við þessu barni!
Mér finnst það samt fyndnast að fólk sem ég hitti úti á götu er orðið pirraðra en ég í biðinni... Híhíhí.... "Hva... ertu enn á fótum? Ertu ekki löngu komin á tíma? Hvenær á barnið eiginlega að koma?" og svo framvegis!
En fékk svona nokkurs konar staðfestingu á því að ég yrði líklegast sett af stað á mánudaginn... þannig að ef ekkert gerist um helgina þá er aldrei að vita!
Athugasemdir
Iss þá læðist krílið í heiminn í nótt!!
Reyndu að hvíla þig og ég ætla að fylgjast spennt með "on the blog"
Jórunn Einars (IP-tala skráð) 16.11.2007 kl. 17:10
Takk takk... eigum við ekki bara að vona það
Sigþóra Guðmundsdóttir, 16.11.2007 kl. 17:15
Ja hérna, ég kíki inn daglega til tékka á fréttum, þetta er nú meiri þrjóskupúkinn og hefur það greinilega bara mjög gott í mömmumaga :)
gangi ykkur vel og vonandi lætur grislingurinn sjá sig í nótt,
sendi þér hríðarstrauma ;)
Sif Sig (IP-tala skráð) 16.11.2007 kl. 18:36
Geir verður að vera fljótur að koma með fréttir inn á síðuna, þegar stóra stundin rennur upp. Allur Bloggheimurinn er að springa úr spenningi.
Magnús Bragason, 16.11.2007 kl. 19:55
Kannast við svona athugasemdir........ekkert sérstaklega gaman.
En gangi ykkur vel.
Kveðja Maja
María Sigurbjörnsdóttir (IP-tala skráð) 16.11.2007 kl. 20:18
Hummm
Engin færlsa í dag.....
Nú hlýtur eitthvað að vera að gerast
Jórunn Einars (IP-tala skráð) 17.11.2007 kl. 19:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.