35 ára goslokaafmælishátíð!
4.7.2008 | 14:16
Fyrstu vinnuvikunni að ljúka! Ferlega skrítið að vera farin að vinna aftur, frá litlu Signý minni, draumadós.
Vinnuskólinn er búinn að vera að raka vikri og keyra hjólbörum og moka vikri (eða kvikri eins og Arndís sagði) undanfarið í Pompei Norðursins. Gaman að sjá túristana koma og hella spurningaflóðinu yfir unglinganna sem eru ekki alveg að skilja áhuga útlendinga á þessum sandi!!!
Bærinn er að fyllast af "gervi-Vestmannaeyingum" eins og einn sagði! Hann skilgreindi það þannig að þetta væri fólk sem kæmi aldrei nema mikið stæði til og tittlaði sig alltaf Vestmannaeying á tillidögum!
Mér finnst bara gaman að fá allt þetta fólk í heimsókn, fara í Krónuna og spjalla við fólk sem maður hefur ekki hitt í áraraðir, sem spókar sig með nýja barnið sitt (sem er kannski bara orðið 4 ára)!
Stelpurnar í boltanum gerðu núll núll jafntefli og þær ætla að koma eftir leikinn í kvöld og við í ráðinu ætlum að grilla ofan í þær og spjalla og hlusta á músík, verðum um 30. K
annski hittumst við í Skvísusundinu um helgina!
Athugasemdir
Hæ fallega fjölskylda. Helga hérna megin hnattar..
Sæt myndin af henni Signýju :) Ég sé að það er nóg um að vera hjá ykkur - og þú bara farin að vinna aftur. Það er naumast sem tíminn líður.
Vildi bara láta vita af mér og að ég er búin að bæta við nýrri færslu við bloggið mitt plús nýjar myndir. Giska á að mamma sé temmilega óþolinmóð..hún þarf alltaf að fá sunnudagsfærsluna sína..
Knús frá Kína,
Helga og Egill
Helga Björk (IP-tala skráð) 6.7.2008 kl. 12:10
Ég var líka að moka "kvikri" í vinnuskólanum fyrir 34 árum frábært fjör vorum að hreinsa í kringum Hólshús bakvið Vilberg (Kaupfélagið) allt handmokað núna er gæsluvöllurinn þar tókum litin þátt í goslokunum núna nema gegnum börnin erum "gömulfólk" eins og Ísak Elí segir bara nenntum ekki í Skvísusundið þegar fyrsta fullorðna fólkið kom heim þó við værum hálfvakandi þvíliku letibykkjurnar
Hjördís Inga Arnarsdóttir, 6.7.2008 kl. 18:00
Halló fallega fjölskylda..
Vildi að ég hefði getað komist á goslokin og eitthvað meira í sumar! Þetta er nú búið að vera alltof fljótt að líða takk fyrir..
Hlakka til að sjá ykkur,
vildi bara kasta kveðju og bið að heilsa öllum.
Sakna ykkar mikið mikið!!
kv. Þura Stína Kristleifs
Þura Stína (IP-tala skráð) 18.7.2008 kl. 17:44
Sælar!!
er eitthvað verið að velta sunnudagskvöldinu á þjóðhátíðini fyrir sér?? hverju á að klæðast eða ekki :=)
inga pinga (IP-tala skráð) 24.7.2008 kl. 12:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.