Mynd af nýjasta heimilisprinsinum!

Depill Kanína!Á meðan þið spreytið ykkur á því að svara spurningunum um mig þá var ég víst búin að lofa mynd af kanínunni okkar, honum Depli... eða heitir hann það!!!!

Hann býr á neðri hæð heimilisins, í herbergi með Guðný... Þau á neðri hæðinni eru búin að vera dugleg að vesenast, aðallega við að koma Guðmundi Tómasi á fætur með því að spræna í bólið hans og á svefnprinsinn!

Ekki það, Depill er mesta krútt... en hann þarf að læra betur á það hvar má pissa og hvar ekki!

Viðvörun ber þó að koma fram... þar sem Depill hefur ekki verið góður við þá sem hafa talað um að borða hann, elda hann eða hvað annað í hans áheyrn. Einn er "stórslasaður" eftir að hafa beðið Guðný um að fita Depil til að hægt væri að éta hann næst þegar sá slasaði myndi mæta á svæðið. Skipti þá engum togum, Depill hljóp upp í hálsakotið og klóraði til blóðs,.. í fyrsta og eina skiptið og hleypti svo nokkrum spörðum ofan í hálsmálið á peysunni á umræddum!!!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigþóra Guðmundsdóttir

Nei Beta... þetta er sko HREINRÆKTAÐUR LIONHEAD ungi og svoleiðis hefur maður bara inni hjá sér!!! Híhíhíhí... Hann er voða lítill og verður voða lítill og loðinn!!!

Sigþóra Guðmundsdóttir, 3.4.2007 kl. 21:34

2 Smámynd: Ragna Jenný Friðriksdóttir

wahahahahhaha Depill hefur svo sannarlega gefið skít í þannan tiltekna mann.......  Greinilega lionhead ungi........

Ragna Jenný Friðriksdóttir, 4.4.2007 kl. 00:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband