Undirbúningurinn á fullu!

Haldiði að ég hafi ekki fengið þessi líka fínu jakkafótin á Guðmund... og hann valdi þau sjálfur... og svo valdi hann bleika skyrtu með bleiku og gráu bindi! Smekkstrákur á ferðinni... og svo vantaði líka skó... en fékk þá heimlánaða.  Set inn mynd af honum í fötunum þegar ég nenni!

Nú Dúddí var svo yndisleg að lána mér brúðarmeyjarkjól á Guðný... hann var bara geggjaður... en allt of lítill. Guðný var nú ekki tilbúin í að viðurkenna að hann væri of lítill.... þrátt fyrir að geta ekki hreyft sig í alltof stuttum kjólnum! En Dúddí klikkar ekki... er á leiðinni út og ætlar að finna stærri fyrir mig eða Guðný. Hún á víst að vera í honum!!!

Svo gerði ég það gott í vinnunni... gekk frá nánast öllum ráðningum í Féló í dag.

Ji hvað ég er dugleg.... það er svo erfitt að vera ég!!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Var að heyra að brúðkaupinu, frábært hjá ykkur hjónaleysunum, tími kominn á ykkur....15 ár VÁ.
Við erum þó ekki langt á eftir ykkur...14 ár og 10 ára brúðkaupsafmæli á næsta ári. Tíminn líður og það sjáum við sko á börnunum okkar, fer ekki að styttast í fermingu hjá ykkur, hehe?
Gangi ykkur sem allra best og hlakka til að sjá brúðarmyndirnar, þú verður að vera dugleg að setja inn nokkrar myndir handa okkur úr brúðkaupinu ;-)
Kveðja,
Dóra Hanna og the boys í DK

Dóra Hanna (IP-tala skráð) 31.8.2006 kl. 22:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband