Jæja... og hvað svo?
15.11.2007 | 11:22
Hvernig yrði lífið með fimmbura á handleggnum... eða handleggjunum? Held maður þyrfti stærra hús... eða í það minnsta algera endurskipulaggningu á húsinu, stærri bíl... já, værum að tala um fjölgun úr 4 manna fjölskyldu í 9 manna!!!!
Úff... ok tvíburar en fimm!!!
Fimmburafæðing gekk vel í Bretlandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Úff fimmburar það er enginn smá pakki. En ég er alltaf að kíkja á síðuna og athuga hvort það séu ekki komnar einhverjar nýjar fréttir en ekkert gerist. Kannski að þetta komi bara 22.nóv það er flottur dagur ;)
Hugsa til þín Sigþóra mín og gangi þér vel
Kv. Anna Fríða
Anna Fríða (IP-tala skráð) 15.11.2007 kl. 13:30
Heil og sæl Sigþóra mín!
Ég sé að það er enn verið að bíða eftir nýjasta meðlimi fjölskyldunnar :) Hlakka til að sjá myndir þegar þar að kemur. Og til hamingju með að það skyldi takast að snúa greyið barninu í bumbunni! (var að tala við ömmu) Það er nú meira sem læknum dettur í hug þessa dagana :)
Ég fylgist reglulega með. Vona að barnið komi bráðum (engin smá bumba sem þú ert komin með!) og allt gangi vel!
Bestu kveðjur frá Danaveldi, Helga Belga
Helga Björk (IP-tala skráð) 15.11.2007 kl. 19:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.