Blebleble!

Listi yfir hluti sem þú ætlar ekki að gera í dag!!!Uss.... þetta kallar maður bara leti!!!

Blogg leti...

Hellingur að gerast en ég nenni ekki að skrifa um það!

Ég nenni ekki að röfla um Bakkafjöru, þó ég sé frekar hrædd um að það rugl nái einhverju fylgi meðal þeirra stjórnmálamanna sem vilja skyndilausnir.

Ég nenni ekki að röfla um það að þrettándagleðin eigi að hefjast kl. 18 í stað þess að halda þeirri tímasetningu sem hefur verið í sjöhundruð ár, kl. 20.

Ég nenni ekki að röfla um helvítis letina í mér undanfarna daga... að hanga vakandi frá morgni til kvölds tekur barasta á þessa daganna.

Ég nenni ekki að röfla yfir "jólafríinu" í skólanum... og erfiðleikunum við að ná krökkunum framúr á morgnanna.

Ég nenni ekki að röfla yfir öllu draslinu sem fylgir breytingum...

Sem sagt yfirgengileg leti í gangi á mínum bæ... en skil samt ekkert í því af hverju aðrir eru ekki duglegri að blogga!!!!!!!  


Jólin og kvefpestin!

Þetta eru búin að vera undarleg jól! ég náði mér í einhverja kvefpest sem fór svona agalega í raddböndin á mér.

Jólin byrjuðu hefðbundin með hangiketi, sviðum og salkjöti hjá mömmu og pabba. Þorláksmessuskötuna fengum við hjá Sverri og Laufey á Ásbyrgi. Við héldum svo upp á afmæli barnanna. Aðfangadagur var eins og vanalega... heima hjá okkur. Nautalundin bara geggjuð, þó ég segi sjálf frá.

Jóladagur, dagurinn sem við höfum alltaf eytt hjá ömmu Lillu! Mamma tók daginn upp á sína arma... hittumst snemma og spiluðum og borðuðum. Á annan í jólum fórum við til tengdó í mat þar sem Sandfellsættin er löngu búin að sprengja utan af sér allt húsnæði og því nánast ómögulegt fyrir hvern sem er að halda jólaboðið.

Vinna á 3ja í Jólum og við máluðum nýju herbergi barnanna... merki um að þau séu að verða gömul... vilja fá herbergi á neðri hæðinni.

Í dag skellti ég mér í vinnu... dugði nú frekar skammt, komin með hita, svitnaði við að sitja við skrifborðið...

Ég er enn raddlaus... hún er í jólafrí, þessi elska... heldur greinilega að hún sé kennari og kemur þá líklegast til starfa 3. janúar!


Söngur og gleði jólanna

Guðný og bekkjarfélagarnir að fara um bæinn syngjandi!

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Í dag var mér tjáð að dóttir mín hefði geislað af gleði og innlifun þegar hún söng fyrir bæjarbúa í morgun með bekknum sínum.

Hún hafði nú á orði í morgun að Þvörusleikir væri bara pínu nískur í ár... og þau sem fóru svo snemma að sofa!

Ég meina Þvörusleikir vissi ekkert af því að þau systkinin áttu að taka til í herberginu sínu í gær!

Líklegast fannst henni að Liverpoolfáninn sem bróðir hennar hengdi upp á vegg í herberginu hafi haft einhver áhrif, hann hlyti að halda með einhverju öðru liði!!!

Skipulag á afmælisveislu skvísunnar stendur yfir. Hún vill hafa það þannig að allir komi í snjófatnaði með eitthvað til að renna sér á. Pabbi hennar á að keyra alla niður á Stakkó og þar verður brunað í einhvern tíma... Á meðan á mamma hennar að hita súkkulaði og baka köku... helst skreytt piparkökuhús fyllt með nammi!!! Engar kröfur... hugsa að ég nái nú að snúa henni yfir í piparkökur og afmælisköku!

Ég verð víst að fara að gera eitthvað því að veislan á að vera á sunnudaginn og við að fara í matarboð í kvöld og á jólahlaðborð annað kvöld!

Svei mér... Jólin koma á ógnarhraða og ég er ekki einu sinni farin að spá í jólakortunum!


Liverpool klikkaði náttúrulega ekki... frekar en fyrri daginn!!!

This is AnfieldSkelltum okkur í brúðkaupsferðina, hjónakornin. Fengum líka þetta brilliant hótel, frábær borg sem greinilega aldrei sefur og sigur á Fulham, þar sem fjögur mörk voru skoruð... Carra setti eitt í kaupbæti!!!

Fórum á föstudaginn með flugi til Manchester, rúta til Liverpoolborgar og farangrinum hent inn á herbergi á Radisonshótelið... beint út aftur að finna okkur eitthvað að borða og skoða miðbæinn sem var í fimm mínútna labbi frá hótelinu!

BreakfastiðTókum laugardaginn snemma, fengum breakfast í beddann, leigubíll í Liverpoolbúðina í miðbænum... ómæ... hundrað manns bara í biðröð til að fá að borga... fyrir utan alla þá sem voru að velja sér og skoða! Allir rekkar að verða tómir og hver að verða síðastur að ná sér í búning, trefil og húfu fyrir leikinn!!! Að missa sig í LiverpoolbúðTveir tímar hurfu á nótæm... Leigubíll til baka á hótelið... losuðum okkur við pokanna, fórum í græjurnar og aftur í leigarann og nú á Anfield!!! Þar var nú bara biðröð til að komast inn í hina Liverpoolbúðina... sko engin smá biðröð... varð eiginlega til þess að maður skammaðist sín að hafa verið að spá í mannþrönginni í hinni búðinni!!! Þar gat maður alla vega labbað inn án þess að fara í klukkutíma biðröð til að komast inn!!!

ZendenGóður klukkutími í leik, rúta leikmanna liðsins keyrði upp að Anfield en hrúgan af fólki varð til þess að maður sá nákvæmlega ekkert!!! Við inn á völlinn, skoða aðstæður maður! 3ja sætaröð varð til þess að við vorum nánast inni á vellinum... myndavélin tekin upp. Zenden og Paletta greinilega ekki í hópnum þar sem þeir röltu hringinn, heilsuðu upp á áhorfendur og gáfu eiginhandaráritanir... dofin við, föttuðum ekki að láta þá skrifa á miðanna okkar!!! Nót tú self: Ef þú átt séns á að láta Liverpoolleikmann skrifa á eitthvað, gerðu það þá!

Tók fullt af myndum á vellinum... sjáið hluta af þeim inni á myndasíðunni!

aukaspyrnaFengum að upplifa YOU NEVER WALK ALONE beint í æð (gæsin mætti), stemmningin að sjá fjögur mörk... úff... að heyra í Bretanum kalla mótherjana SJÆT villt og galið... Hefði aldrei trúað þessu SJÆT (SHIT á íslensku).

Þegar leikurinn kláraðist hrúguðust náttúrulega 43900 manns út á götu... og helmingurinn af þeim ætlaði sér að ná í leigara!!! Við ein af þeim. Spurðum löggu á staðnum hvar best væri að ná í hann... jújú, bara að labba í aðra hvora áttina og vinka einum! Við löbbuðum af stað og löbbuðum í góðan klukkutíma, sem betur fer í rétta átt... þar sem við rákum augun í hótelið þegar við vorum búin að labba í þrjúkorter... spurning um að vera með innbyggðann áttavita... hmmmm

LiverpoolfansFórum í bað, klæddum okkur upp og fórum á Ítalskan út að borða.  Skröltum um miðbæ Liverpool og hittum fullt af Bretum, tókum þá tali og skemmst er frá því að segja að við fengum ekki að taka upp veskið fyrr en við komum aftur upp á hótel fjórum tímum seinna. Á meðal þeirra sem við hittum var fyrsti kærasti Karenar okkar Burke, hmm, kannski eini kærasti hennar!!! Lítill heimur!

Þegar við komum á hótelið voru flestir Íslendingarnir enn á hótelbarnum, ekki enn farnir út úr húsi!!! Vissu varla hvar miðbærinn var, hvað þá hvar The Cavern var... The Cavern er BARA frægasti pöbb Liverpool... og þá aðallega fyrir að Bítlarnir spiluðu þar 298 sinnum á sínum fyrstu árum og að vera langt neðanjarðar (ætli þeir hafi fengið hugtakið Undergroundmúsik þaðan?) þannig að við tókum hina í túr um miðbæinn!!!

Rölt meðfram Mersey RiverSunnudagurinn fór í Jólagjafaleiðangur, lögðum okkur aðeins seinni partinn þar sem laugardagskvöldið sat enn í okkur! Fórum út að borða á kínverskan... mmmmmm. Pöntuðum okkur einhvað svona fyrir tvo!!! Átum helminginn... og sprungum nánast á tveimur tímum... röltum meðfram Merseyriver og skröltum á hótelið... svei mér ef laugardagskvöldið sat ekki enn í okkur. Ákvað að pakka mestu því að mánudagurinn var planaður.

Í viðtali?Fórum á Anfield í skoðunarferð, kíktum í hina Liverpoolbúðina, komum ekki tómhent út!!! Fórum á Bítlasafnið og röltum um Albert Dock og fengum okkur að borða á skemmtilegum veitingastað/pöbb. Leigari upp á hótel og rútan tekin til Manchester... og flugið tekið heim!

Misstum okkur í fríhöfninni eins og yfirleitt... og vorum stoppuð af tollara, sem spurði og spurði og spurði... Honum fannst við vera með mikinn farangur... hvaða vitleysa!!!

Jæja... meira seinna!!! 


Hjónabandið greinilega að virka!!!

GeirGeir tók þátt í því að krossleggja fingur (sbr. síðustu færslu) og er nú í fatla! Spurning um að vera ekkert með svona tillögur... sérstaklega ekki svona erfiðar!!!

Geir er nú líka farinn að taka að sér ýmislegt smálegt í hjónabandinu, svona það sem ég sá aðallega um í óvígðri sambúð okkar... en þar er ég að meina þann verknað, að liggja á sjúkrahúsbekk, með lækni við hina ýmsustu líkamsparta, að munda tæki og tól! Þar sem hlutfallið var fyrir vígslu 10-1 mér í vil... treysti ég á að þetta verði nokkuð jafnara í vígðri sambúð, en staðan er nú 1-0 honum í vil.

Eigum við ekki að segja að ég hafi unnið heimaleikinn (gjörsigrað væri kannski réttara) og útileikinn er ég ekkert spennt að vinna... Kallinn kominn yfir og eigum við ekki að vona að staðan verði óbreytt næstu misserinn!!!

Er þetta samt ekki típísk við??? Rétt ófarin til útlandsins og þá er einhver komin í fatla!!! Hver á að hjálpa mér með alla pokanna... og töskurnar!!! Nú getum við BARA farið með 3 töskur... í stað þeirra 4 sem ég hafði hugsað mér að troða út í LIVERPOOL!!!

Geir hafði þó vit á því að skaða sig ekki stórkostlega (ég sé greinilega enn um það) og komumst við því í ferðina... Hann hafði líka vit á því að slasa bara vinstri (hann er rétthentur) þumalinn. Þannig að höndin sem hefur staðið í ströngum æfingum í glasalyftingum, þarf ekki að tilkynna veikindi!!!

 Kveðja frá Draumalandinu... Sigþóra 

P.S. það er bara hálf undarlegt að horfa á manninn sinn liggja svona á staðnum sem ég hef verið allt of oft á á undanförnum árum!!! Mér fannst hann nú bara vera að stelast... svona svipað og maður sé á leiðinni í rúmið og hann væri mín megin!!! 


Liverpool og afmæli!!!!

afmæli mömmu 030Nú gengur í garð afmælishryna barnanna minna!

Guðmundur Tómas á morgun og Guðný eftir hálfan mánuð... og ég á leið til Liverpool á föstudaginn............ hlakkar agalega lítið til eða þannig!!! Liverpool - Fulham... krossleggjum fingur og treystum á svipaðan leik og í gær!!!


Ég hef...

( ) reykt sígarettucarcrash
(x) klesst bíl vinar/vinkonu (bróðir minn átti þann sem fór inn á kirkjulóðina)
(x) stolið bíl (foreldranna) 

(x) verið ástfangin/n
( ) verið sagt upp af kærasta/kærustu
( ) verið rekin/n úr vinnu
(x) lent í slagsmálum... (já, en verulega langt síðan... síðast við bróðir minn)
( ) læðst út meðan þú bjóst ennþá heima hjá foreldrunum (læddist bara inn).
(x) haft tilfinningar til einhvers sem endurgalt þær ekki
( ) verið handtekin/n
( ) farið á blint stefnumót
(x) logið að vini/vinkonu
(x) skrópað í skólanum
(x) horft á einhvern deyja
( ) farið til Canada
( ) farið til Mexico
(x) ferðast í flugvél
( ) kveikt í þér viljandi (það gerðist óvart)
( ) skorið þig viljandi (það gerðist líka óvart)
(x) borðað sushi
(x) farið á sjóskíði
( ) farið á skíði
(x) farið á tónleika
(x) tekið verkjalyf
(x) elskar einhvern eða saknar einhvers akkurat núna
(x) legið á bakinu úti og horft á skýin
(x) búið til snjóengil
(x) haldið kaffiboð
(x) flogið flugdreka
(x) byggt sandkastala
(x) hoppað í pollum
(x) farið í "tískuleik" (dress up)
(x) hoppað í laufblaðahrúgu
(x) rennt þér á sleða
(x) svindlað í leik
(x) verið einmana
(x) sofnað í vinnunni/skólanum
( ) notað falsað skilríki
(x) horft á sólarlagið
(x) fundið jarðskjálfta
(x) sofið undir berum himni
(x) verið kitluð/kitlaður (löngu búið að **** það úr mér)
( ) verið rænd/rændur (held ékki)
(x) verið misskilin/n (ji, já, alltaf að gerast)
( ) klappað hreindýri/geit/kengúru
(x) lent í bílslysi
(x) farið yfir á rauðu ljósi/virt stöðvunaskyldu að vettugi (óvart)
( ) verið rekin/n eða vísað úr skóla
( ) verið með spangir/góm
(x) liðið eins og þú passaðir ekki inn í/þriðja hjól undir vagni
(x) borðað líter af ís á einu kvöldi (með fleirrum samt)
( ) dansað í tunglskininu
(x) fundist þú líta vel út
(x) verið vitni að glæp
(x) efast um að hjartað segði þér rétt til
(x) verið gagntekin/n af post-it miðum (þið vitið - þessum gulu)
(x) leikið þér berfætt/ur í drullunni
(x) verið týnd/ur
(x) synt í sjónum
(x) fundist þú vera að deyja
(x) grátið þig í svefn
(x) farið í löggu og bófa leik
(x) litað nýlega með vaxlitum
(x) sungið í karaókí
( ) borgað fyrir máltíð eingöngu með smápeningum (við erum að tala um krónur, fimmkalla og tíkalla hérna)
(x) gert eitthvað sem þú lofaðir sjálfri/sjálfum þér að gera ekki
(x) hringt símahrekk
(x) hlegið þannig að gosið frussaðist út um nefið á þér
(x) stungið út tungunni til að ná snjókorni
(x) dansað í rigningunni
(x) skrifað bréf til jólasveinsins
( ) verið kysst/ur undir mistilteini (nei, held ég hafi bara aldrei séð mistiltein)
(x) horft á sólarupprásina með einhverjum sem þér þykir vænt um
(x) blásið sápukúlur
(x) kveikt bál á ströndinni! (Já, það var þarna þegar ég kveikti í mér)
(x) komið óboðin/n í partý
( ) verið beðin/n um að yfirgefa partýið sem þú komst óboðin/n í
(x) farið á rúlluskauta/línuskauta (hjólaskauta... og miðað við hvernig mér gekk þá hef ég látið, allt sem heitir skautar, vera)
(x) hefur einhver óska þinna ræst
( ) farið í fallhlífastökk (en langar geggjað mikið)
(x) hefur einhver haldið óvænt boð fyrir þig (gæsapartýið... það var nú samt ekkert svaka óvænt)
(x) gert þig af þvílíku fífli fyrir framan fullt af fólki (oft og mörgum sinnum)
( ) farið nakin í sund (Nei, en í heitan pott)
(x) rennt þér á grasinu á snjóþotu (varð að prófa það)
( ) verið sett í straff
(x) logið fyrir vini þína
( ) liðið yfir þig (ómæ... hefur aldrei liðið yfir mig? Ég er hetja!)
(x) fengið sms frá einhverjum sem þú veist ekkert hver er og byrjað að spjalla við manneskjuna
(x) eyðilagt eitthvað sem vinur þinn átti


Gubbupest og önnur gleði!

krakkarnir í gírnumÞað er alveg spurning um að gera rannsókn á því af hverju allar gubbupestir byrja að nóttu til... þegar flestir eru nógu ruglaðir að fatta ekki að þeir þurfi að æla fyrr en of seint!

Guðný var búin að vera að kvarta yfir maganum á sér á fimmtudagskvöldið þannig að við ákváðum að setja fötu við rúmið hennar. Hins vegar var það Guðmundur sem byrjaði á því í fyrrinótt að æla mjög reglulega. Honum leið svo illa í gær að hann stundi upp þegar höfuðverkurinn var sem mestur: "Mamma, mér líður eins og ég sé að missa vitið!"

Guðný fékk líka að sleppa skólanum af því að það var nú hún sem að var búin að vera að kvarta yfir maganum... og okkur foreldrunum fannst ekki taka því að hún væri að fara í skólann til þess eins að gubba allt út þar. En hún var bara ferskust í heimi í gær... skoppaði um allt, bróðir sínum til ama, en stundi á milli að henni væri illt í maganum!

Ég hundskammaði hana fyrir að vera að plata til að fá að sleppa skólanum.

Nú svo fóru allir að sofa...

Guðný hófst svo handa í nótt... og er búin að gubba nánast á hálftíma fresti í alla nótt! Nú er staðan sú að hún kúgast bara af því að hún hefur engu að kasta upp. Samt er hún hress á milli... hmmm, kannski var hún ekkert að plata í gær??!!??

Helgin verður vægast sagt mjög sérstök... fastur inni að tæma fötur... þvo þvott... elda mat sem engin hefur list á... og bíða eftir að maður byrji sjálfur!!!


Ein af mjög fáum uppskriftum frá mér!!!

Nú fara málin að skýrast.

Maður heldur að maður eigi vini og svo skora þeir á mann í einhverju sem þeir vita að er varla til á heimilinu... og hvað þá að það sé notað! Uppskriftir!!!

Anna Lilja, með engilblíða framkomu og enn ljúfari ásýnd, leynir á sér í kvikyndisskapnum en þetta verður allt fyrirgefið með tíð og tíma! Gott ef ekki fyrr en seinna!

Þar sem orðin sletta, slatti og smá eru ekki vinsæl í uppskriftum þá ætla ég að henda fram uppskrift af "wokmatnum" okkar... sem fólk gerir svo bara að sínu með að setja út í það uppáhaldskryddin sín, uppáhaldsgrænmetið, uppáhalds kjötið og smakkar svo til þangað til það er orðið eins og fólk vill hafa það! Og þá breytir maður til þannig að það er ekkert allt of oft eins á bragðið!!!

Ágætt er að byrja að undirbúa sig um hádegi... eða fyrr eða seinna og setja olíu í skál (mæli með extra virgin (er víst agalega holl)), sletta af tabassco og sojasósu út í olíuna, saxa ferskan chili, rispa engifer rót og mylja pipar og salt útí olíuna. Láta hana standa og leyfa kryddinu að brjóta sig! Því lengri tími, þess bragðmeiri og sterkari olía. Stundum bý ég til nóg af olíu og á hana í flösku þangað til næst. Þetta er þó engin nauðsyn, virkar líka að henda bara öllu saman beint á pönnuna.

Skera t.d lambavöðva niður í hæfilega bita (ekki stærri en munnbita).

Ég nota yfirleitt lauk, rauðlauk, púrrulauk, hvítlauk, sveppi, rófur, gulrætur, paprikur (tvo til þrjá liti til að gera matinn líflegan) og annað girnilegt grænmeti sem ég rekst á, saxa grænmetið gróft, t.d. sveppina í fjóra hluta, rófurnar í strimla og laukana í hringi.

Aðalatriðið er að ekkert sé of smátt, að þú finnir fyrir hverju fyrir sig undir tönn.

Mundu bara að grænmetið á að vera svona 3/4 af matnum sem endar á pönnunni.

Ristaðar hnetur skemma matinn ekki, nema að einhver sé með ofnæmi, alls konar sósur eru líka til, indverskar, tælenskar og hvað það nú heitir allt saman... og þær skemma sjaldnast. Ekki vera feimin við að prufa!

Taktu fram wok pönnu (má líka vera bara venjuleg djúp stór panna) settu hana á helluna og hitaðu hana.

Þegar olían er farin að snarka vel skellirðu kjötinu á pönnuna. Þegar þú ert búin að loka kjötinu skellirðu grænmetinu á pönnunna líka og hrærir vel. Leyfir öllu að malla í rólegheitunum á pönnunni,

Gott er að bera fram með wokinu hrísgrjón, brauð og t.d. gular baunir

Nauðsynlegt er að borða matinn með prjónum í góðum félagsskap, þannig nýturðu þess betur, tekur lengri tíma í að borða, spjallar vel við þá sem sitja við borðið með þér og vonandi eru fleiri en einn tími liðinn þegar allir standa upp frá borðinu, saddir og sælir.Litla familían!

Ætla svo að enda þetta á þvi að skora á elskulega múttu mína að koma með uppskriftina af kalkúninum og fyllingunni í hann og svalasvíninu, svo að ég fái frið fyrir brúðkaupsgestunum mínum!!!


Matgæðingur vikunnar!!!

MaturMætti halda að Anna Lilja vinkona þekkti mig ekki neitt og vissi ekki að ég notast agalega sjaldan við uppskriftir!!!

Haldiði að kellingin hafi ekki skorað á mig og ég er bara í stökustu vandræðum.  Hugsa að það endi með að fyrir framan hvert hráefni verði orðin slatti, smá eða sletta!!! OG svo smakkarðu bara til fíflið þitt... hehehehe

 Geir lagði til að hann myndi bara taka myndir af mér að elda... en ég held að slattinn sem ég nota náist ekki heldur á ljósmynd!!!

Jæja, sjáum hvað verður... alla vega er Svenni Þórðar búinn að hringja og reka á eftir mér... talaði reyndar við Geir!!!

Hef fengið áskoranir með eitthvað af WOKINU, það er kannski ekkert vitlaust... þar sem að þar má slumpa allt til eins og mann listir!!!


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband