Vikan sem leið í máli og myndum!
5.5.2008 | 14:59
Geir kominn í sumarfrí/fæðingarorlof með mér! OG BARA 3 vikur þangað til við stingum af í sólina!
Vegabréfin eru öll í gildi og Signýjar var að finnast á sýslumannsskrifstofunni! Rétt tæpur mánuður síðan við fórum að sækja um!
Signý er farin að ná að sitja í smá stund áður en hún veltur útaf!!!
Og ekki má gleyma puðrinu í henni á matmálstímum.... líka þegar hún er á brjósti! MMMMMMM, lekkert!
Amma Dagga er ótrúleg, hefur heldur betur jafnað sig eftir veikindin í vetur, sat frammi í sólhúsi að lesa blöðin þegar við litum við hjá henni 1. maí. Tók þessar myndir við það tækifæri!
Guðný varð íslandsmeistari í handbolta í gær með c-liði ÍBV í 6. flokki. Þær töpuðu tveimur leikjum í allann vetur, fjórar umferðir og spiluðu heila umferð einum færri og Guðný puttabrotinn og aðra þar sem 3 fengu gubbupest... ein með poka á bekknum og markmaðurinn hlaupandi á klósettið! Snillingar sko! Mynd af henni með afrakstur helgarinnar og vetursins.
Annars hafa ritgerðasmíðar barnanna haldið áfram við matarborðið. Guðmundur Tómas er að gera ferðabækling um Portúgal og Guðný að gera ritgerð um bókina Benjamín dúfa. Bara 15 skóladagar eftir hjá þeim.
Ég setti inn nokkrar myndir í viðbót, Signý í heita pottinum hjá ömmu og afa á Hrauntúninu, Fiddi Palli nágranni að spjalla við konuna sína í mikla snjónum í vetur,(Takið eftir að glugginn er á 2. hæð !!!!)
Katrín Sara og Ólafur Kristján frændsystkini og Amma Helga með Signý sína!
Athugasemdir
Flott myndablogg gaman að skoða og lesa! Signý er yndisleg! Til hamingju með Íslandsmeistarann og þau öll!
Ég vil bara að skólanum ljúki sem fyrst finnst þessi hálfskóli algjör vitleysa verið að hanga yfir engu prófin búin og alles það á bara að hleypa krökkunum útí vorið
Kveðja
Hjördís Inga Arnarsdóttir, 5.5.2008 kl. 15:17
Geggjaðar myndir frænka
frétti að vestmannaeyjarættliðurinn myndi mæta á Jet blac joe og hlakka ekkert smá til að sjá ykkur ! þið haldið uppi fjörinu Hvar sitið þið í salnum ? knús kveðjur Sigga
Sigríður Guðnadóttir, 5.5.2008 kl. 18:02
Mátti til með að líta til þín. Kær kveðja.
Þorkell Sigurjónsson, 7.5.2008 kl. 05:51
Góða ferð í sólina
Sölvi Breiðfjörð , 7.5.2008 kl. 09:51
gaman að koma hér....alltaf svo mikið um að vera
góða ferð í sólina
Guðný Bjarna, 8.5.2008 kl. 08:50
Ofsalega eru börnin í þessari fjölskyldu falleg. Knús til ykkar sætu.
Þórey (IP-tala skráð) 12.5.2008 kl. 12:49
vonandi hafið þið það gott úti á Tenerife.
Þú getur sagt tengdó að hún sé orðin mikil vinkona okkar hérna í Bólstaðarhlóðinni. Georg horfir reglulega á "Ég lifi" og lítur alltaf mig og segir: "þetta er Helga, hún er amma Guðnýjar"
Lauga (IP-tala skráð) 3.6.2008 kl. 16:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.