Bloggfærslur mánaðarins, september 2008
Heppin ég!!!
30.9.2008 | 15:22
Í síðustu viku ákvað ég að taka afrit af öllum ljósmyndum síðustu ára og tónlistinni minni. Samtals um 35 gíg.
Í morgun hrundi harði diskurinn í tölvunni minni og ekki hægt að nálgast eitt einasta efni af honum!
Þakka guði fyrir að sonurinn hafi ekki verið byrjaður á nýjustu ritgerðinni... hann hefði orðið kreisí á að þurfa að gera allt aftur!!! Og hann er víst alveg nógu oft kreisí þessa daganna þó að við séum ekki að bæta einhverju svona ofan á það allt saman!!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Æðislegt fólk!
30.9.2008 | 13:24
Ég er alltaf að sjá það betur og betur hvað ég er með æðislegt fólk í kringum mig! Við vinkonurnar áttum frábæra helgi saman í faðmi fjölskyldna. 8 fullorðnir og 12 börn frá tæplega 13 ára til nýfædds og eitt á leiðinni! 2 stelpur í öllum þessum barnafans... ætli það sé met hvað við vinkonurnar eigum fáar stelpur? Ég er eina í Eyjum sem á stelpu... og ég á tvær!!!
Takk stelpur og strákar fyrir æðislega helgi! Hefði ekki viljað missa af þessu þó mér hefði verið borgað fyrir það!
Knús á línuna!
P.S. set inn mynd af samkomuhúsinu og húsinu sem við Geir gistum í með börnin okkar!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Vitlaust að gera!
25.9.2008 | 13:45
Átti afmæli á þriðjudaginn, Bjarni Ólafur á mánudaginn og Jóna systir í dag. Til hamingju með það!
Mamma og pabbi voru að koma heim í gærkvöldi. Kíkja þangað.
Við Signý erum á leiðinni í Landakirkju á mömmumorgun.
Erum að pakka niður... því að sumarbústaðarferðin ógurlega verður um helgina!
Guðný og Guðmundur Tómas fóru á lokahóf knattspyrnunnar og Guðný kom heim með ÍBV-arann, bikar sem stendur fyrir svo margt! Jákvæðni, áhuga, hvatningu... Hún var spurð af vinkonu sinni í gær, hvort hún ynni þetta ekki alltaf!!! En neinei... bróðir hennar fékk þennan titil 2006 og hún fékk þá framfaraverðlaunin! En vinkonunni fannst hún sem sagt eiga þetta skilið... og mér líka!
Signý fór í læknisskoðun á afmælinu mínu, fékk stimpilinn "flott stelpa"... en var svo spurð hvort eitthvað hafi verið rætt við okkur um stærðina á höfðinu á henni! Gat maðurinn ekki bara horft á mig...? Nei, nei.... þetta er víst fylgikvilli sem ég erfði frá pabba mínum og Guðný er sú eina sem virðist sleppa ;)
Ég er búin að vinna tvo daga í þessari viku... og er alltaf gjörsamlega búin þegar ég skríð uppí rúm, enda mæta 40 - 60 unglingar í hvert skipti og því fylgja orkusugur og andleg þreyta! Tekur mig vonandi ekki mikið meira en mánuð að venjast þessu lífi aftur!!!
Set inn nokkrar nýjar myndir í albúmið September 2008
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Heilræði um rykið!
23.9.2008 | 14:20
LAG AF RYKI VERNDAR VIÐINN UNDIR ÞVÍ...
HÚSIÐ VERÐUR HEIMILISLEGRA ÞEGAR ÞÚ GETUR SKRIFAÐ ÉG ELSKA ÞIG" Í RYKIÐ Á HÚSGÖGNUNUM.
ÉG VAR VÖN AÐ EYÐA MINNST 8 TÍMUM HVERJA HELGI TIL ÞESS VERA VISS UM ALLT VÆRI FULLKOMIÐ EF AÐ EINHVER SKYLDI KOMA ÓVÆNT Í HEIMSÓKN"...
AÐ LOKUM UPPGÖTVAÐI ÉG AÐ ÞAÐ KOM ENGINN Í HEIMSÓKN ..ÞAÐ VORU ALLIR ÚTI AÐ SKEMMTA SÉR!!!
EN ÞEGAR AÐ FÓLK KEMUR Í HEIMSÓKN, ÞÁ ÞARF ÉG EKKI AÐ ÚTSKÝRA
ÁSTANDIÐ Á HEIMILINU... Það býr fólk hérna... meira að segja 5 stykki fólk!
Vinir HAFA MEIRI ÁHUGA Á AÐ HEYRA UM ÞÁ HLUTI SEM ÉG GERÐI Á MEÐAN ÉG VAR ÚTI Á LÍFINU AÐ SKEMMTA MÉR!!
5 atriði svona EF AÐ ÞÚ Hafðir EKKI UPPGÖTVAÐ ÞETTA á undan mér, ÞÁ SKALTU FARA AÐ Þessum Heilræðum:
LÍFIÐ ER STUTT. NJÓTTU ÞESS!!!!!
ÞURRKAÐU AF EF ÞÚ VERÐUR... EN Þá er minni TÍMI TIL AÐ; FÁ SÉR BJÓR, SYNDA Í sjó OG KLÍFA FJÖLL, HLUSTA Á TÓNLIST OG LESA BÆKUR, FAGNA MEÐ VINUM OG LIFA LÍFINU...
ÞURRKAÐU AF EF ÞÚ VERÐUR...; EN VÆRI EKKI BETRA AÐ MÁLA MYND EÐA SKRIFA BRÉF, BAKA SMÁKÖKUR EÐA KÖKUR OG SLEIKJA SKEIÐINA, EÐA SÁ FRÆI.
HUGLEIDDU MUNINN Á MILLI ÞESS SEM ÞÚ VILT EÐA ÞARFT...
ÞURRKAÐU AF EF ÞÚ VERÐUR, EN HAFÐU Í HUGA AÐ ELLIN KEMUR MEÐ SÍNU GRÁU HÁR OG HÚN ER EKKI ALLTAF GÓÐ...
ÞURRKAÐU AF EF ÞÚ VERÐUR... EN HEIMURINN BÍÐUR EFTIR ÞÉR ÞARNA ÚTI... MEÐ SÓLSKINIÐ Í AUGUM ÞÍNUM, VINDINN Í HÁRI ÞÍNU, FLÖGRANDI SNJÓKORN, FÍNGERÐUR REGNÚÐI...
ÞESSI DAGUR KEMUR EKKI AFTUR... OG ÞEGAR ÞÚ FERÐ OG ÞÚ VERÐUR AÐ
FARA... ÞÁ MUNT ÞÚ SJÁLF SKAPA MEIRA RYK!!
DEILDU ÞESSU MEÐ ÖLLUM ÞÍNUM GÓÐU VINUM SEM ERU Í ÞÍNU LÍFI...
ÉG GERÐI ÞAÐ... Er að því hér!
ÞAÐ ER EKKI ÞAÐ SEM ÞÚ SAFNAR, HELDUR ÞAÐ SEM ÞÚ SÁIR, SEM SEGIR TIL UM
ÞAÐ HVERNIG LÍFI ÞÚ HEFUR LIFAÐ..
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Myndir af árgangsmóti!
22.9.2008 | 09:48
Ákvað að henda hér inn nokkrum myndum af árgangsmótinu sem var nú í september.
Fyrsta er af okkur í GoGo's,
Önnur er af villingabekknum.... (vantar samt alla villinganna )
Ein af okkur Geir.
Ein af okkur og Önnu Lilju og Kjartani.
Og svo ein góð af æskuvinkonunum, mér og Þurý Sif.
Æðislegt var að hitta alla gömlu (ekki samt svo gömlu) félagana, rifja upp alla vitleysuna, endurnýja kynni og hafa gaman með góðu fólki...
P.S. Ég virðist ekki geta komið eðlilega út á myndum... eins og ég er sæt!!! hahahaha
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Same old - same old!
20.9.2008 | 12:18
Ég er komin heim! Ég er komin heim!!!!
Búin að vera á fundi og fyrirlestrum á Steinstöðum, í sambandsleysi við umheiminn! Ekkert þráðlaust net og síminn steindauður!
Signý varð 10 mánaða í gær... og vaknaði kl. 6 í morgun, til í nýjan dag... foreldrum til mikillar gleði!!!
Fyrir ykkur sem spyrjið.... Ég hef svo tekið ákvörðun um að taka að mér starfið í Féló í vetur, ekki fyrir mig eða sveitarfélagið, heldur fyrir unglingana!!! Held samt að ég tolli ekki lengi í þessu vinnuumhverfi!!! Þar sem engin virðing er borin fyrir starfinu okkar af þeim sem ráða!
En aftur að björtu hliðunum í lífinu... ég ætla að nota tímann vel í vetur... þar sem ég verð bara að vinna 3 daga í viku... hef ég mikin tíma með börnunum mínum oooooog kannski maður fari eitthvað að hreyfa sig???
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Hugsanirnar heimskar sem gínur á húsveggjum!
11.9.2008 | 08:03
Hugsanir mínar hafa verið óskipulagðar með eindæmum, rót á huganum og þar af leiðir bloggskortur!
Signý og ég höfum það agalega kósý saman tvær á morgnanna eða þar til ég þarf í vinnu og hún til dagmömmu... Það er reyndar smá munur á dögunum okkar, hún grenjar nánast allan tímann en mig langar að grenja... Sakna þess stundum að vera ekki bara 9 mánaða, alveg að verða 10 og að það sé bara allt í lagi að hágrenja ef maður er ekki sáttur!
Hef verið að velta fyrir mér framtíðinni! Hvað ég geti gert þegar ég verð stór... og hvort ég eigi að þrauka í vinnunni minni þar til fólk með viti kemst til valda, fólk sem skilur nauðsyn þess starfs sem við sem vinnum með unglingu skilum til samfélagsins!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)