AÐ deyja ekki úr leiðindum!

Það er misjafnt hvað við gerum í frítíma okkar til að njóta lífsins. Ég hef gaman af því að bútasaumast, fara í fótbolta, kíkja í kaffi til vina og ættingja, lesa bækur, sauma í, glápa á góðar ræmur, fá vini og ættingja í heimsókn, þvælast um netið og taka myndir... ásamt mörgu öðru. Það sem er í hávegum haft þessa dagana er að þvælast um netið, lesa bækur, sauma í, glápa á góðar ræmur og fá vini og ættingja í heimsókn.  Það versta er að þetta er ekki gert á mínum forsendum!

Ég get ekki hellt uppá fyrir fólkið sem kemur, það verður að gera það sjálft... og yfirleitt er þetta sama fólk komið á fullt að ryksuga, ganga frá þvotti, setja í þvottavél og setja í uppvöskunarvél, það er víst verulega takmarkað sem ég frétti... og því ekkert nýtt uppúr mér að draga!

Ef það er ekki á netinu þá veit ég það ekki! Vinir mínir eru ekki nógu duglegir að blogga fyrir mig... helst vildi ég fá fréttir tvisvar eða þrisvar á dag!!!

Verst að sófinn er ekki með fjarstýringu... þannig að ég gæti rúllað mér í eldhúsið til að hella upp á, ganga frá eftir hádegismatinn... sem ég bæðevei borða liggjandi í sófanum.

En mikið má ég þakka fyrir fólkið í kringum mig... sem nennir að láta sjá sig, bara til að sitja hjá mér... þó ég hafi ekkert að segja. Pabbi og Geir eru búnir að vera að klára að ganga frá úti, á meðan mamma er búin að tryllast í þvottahúsinu og fataherberginu, Berglind mágkona kom og ryksugaði allt, Inga frænka kom að spjalla og henti í þvottavél í leiðinni, Anna Lilja reddaði kjötinu í brúðkaupið og kom því í kistuna...

Geir kom svo heim með gjöf handa mér í dag "í tilefni dagsins"... alla vega sagði hann: "Til hamingju með daginn!" og rétti mér DVD með tónleikum Phil Collins. Ég veit ekki enn hvaða dagur er í dag!!!

Og svona til að loka deginum... þá mæli ég ekki með því að fólk skipuleggi brúðkaupið sitt úr rúminu eða sófanum!!! Sérstaklega ekki ef þú ert ekki búin að velja kjólinn!!! 

Ætli maður verði ekki svona!!!


Myndir, myndir og aftur myndir!!!

Nú er ég búin að setja tengla hægra megin á síðuna á alvöru myndasíðurnar mínar!Hlæjandi 

Þessa tók ég í sumar og er bara lítið sýnishorn...Guðmundur Tómas að koma heim úr keppnisferðalagi í sumar! (Hann er í flugvélinni)

 


Börnin mín!!!

Ég er stolt móðir í dag.

Börnin mín tvö voru að koma heim af lokahófi knattspyrnusumarsins og komu bæði með verðlaun heim!

Guðmundur Tómas var verðlaunaður með ÍBVaranum, sem er verðlaun fyrir að vera góður fyrir hópinn, áhuga á æfingum og að leggja sig fram fyrir liðið.

Guðný var verðlaunuð fyrir að taka mestar framfarir á árinu! Svo fékk hún verðlaunapening um hálsin fyrir þriðja sætið á íslandsmótinu.

Má mamma ekki vera stolt af kjúklingunum sínum!!!???


Já, góðan daginn!

Nú er afmælishryna að ganga yfir fjölskylduna mína! Og maður man eftir helmingnum... ef maður hringir í réttann aðila! Ég fékk til dæmis hamingjuóskir á afmælisdegi Bjarna Ólafs, syni Jónu sys!

Annars er allt bara ljómandi að frétta! Ég er enn að drepast í maganum... það breytist ekki. Og bakið er eitthvað að hrjá mig þessa stundina... ætla að henda mér í pottinn hjá múttu í dag!

Er á leiðinni í borgina með unglingaráð Féló á Landsmót Samfés. Það verður örugglega ljómandi hreint gaman!!!

Undanfarnir dagar hafa einkennst af kertasýki... og ég virðist hafa týnt nennunni til að gera eitthvað á heimilinu, setja í þvottavél, taka úr uppvöskunarvélinni og þess háttar!!! Þarf endilega að plata Geir í málin með mér einn daginn og taka húsið í gegn!!! Ekki nenni ég því ein...!


Æm alæf!

Afsakið, afsakið, afsakið!!!

 Ég er alveg ferleg þessa daganna í blogginu... kemur ekkert frá mér

Fór á Sálina... komin heim um 3... gjörsamlega búin á því!!! Enda búin að vera að drepast í maganum allann daginn, fara í tvö barnaafmæli, í yndislegan mat hjá æðislegu fólki og á lokahóf Oldís... þar sem ég fékk 3 verðlaun!!! Aldrei verið verðlaunuð svona mikið!!! Á ævinni!!! Alla vega þá fékk ég verðlaun fyrir flottasta markið hjá liðinu, að vera vinalegust og svo völdu stelpurnar mig sem BESTA LEIKMANNINN... hahaha, ég hef aldrei áður verið valin best!!! Fullt af klappi á bakið maður lifandi... kann ekki að taka svona!

Við Geir á ballinu... hann er eins og geðsjúklingur þarna

Í gær fór ég í borgina... keypti 70 kerti, 20 diska, 80 kampavínsglös og fullt af öðrum óþarfa. Fann fullt af kjólum, pilsum, toppum og blússum sem ég myndi ekki láta sjá mig í... hvað þá að gifta mig í!!!  Alla vega, með fullt skottið af drasli!!! 

Í dag er ég heima... hlaupandi á klóið reglulega. Æðislegir svona dagar.


11. september

Skrýtið hvað sum augnablik festast í minningunni!  Ég man t.d. nákvæmlega hvar ég var þegar ég heyrði frétt þess efnis að Díana Prinsessa væri látin, þegar litlu systkinabörnin mín fæddust og þegar ég fékk SMS um að kveikja á fréttunum fyrir 5 árum... Ég þurfti reyndar ekki að kveikja á þeim þar sem ég var að horfa á beina útsendingu þegar seinni vélin lenti á Hinum Tvíburanum!

Á því augnabliki sem maður sá aðra flugvél koma svífandi að áttaði maður sig á því að áreksturinn var ekki hræðilegt slys, heldur skipulögð árás!

Ég er ansi hrædd um að ég eigi aldrei eftir að gleyma hryllingnum við þá uppgötvun og svo þeim tilfinningum sem fylgdu þegar maður sá fólk hanga út um gluggana, kastandi sér út úr hitanum og svo þegar turnarnir hrundu með látum og allt fólkið, sem átti sér ekki útleið, með!

 Dagarnir á eftir þar sem venjulegt fólk þakkaði Guði fyrir að hafa misst af flugi, tafist í umferðarteppu á leið til vinnu, verið heima vegna veikinda eða eins og einn, viðurkenndi að hafa bara ákveðið að skrópa og sofa út!!!

Augnablikið varð að mínútum, dögum og mánuðum og nú eru 5 ár liðin og maður mann þetta allt eins og gerst hafi í gær!

Þar til síðar!!!


Framför!

Við hjónaleysin sættumst á mynd í gærkvöldi... og ákváðum að senda hana og textann á prentsmiðjuna og þeir myndu leysa næsta vandamál... þ.e. að velja lúkkið á boðskortið!!!

Þá er það frá og næsta verk ætti þá að vera??? Hvað gerir maður næst í undirbúningi brúpkaups??? Þetta er svo ekki ég að það hálfa væri svo miklu meira en yfirdrifið!!!

Öll hjálp þegin....

 


Vitna í síðustu bloggfærslu

Og jú ég ætla að vaka þetta skiptið líka!!! Eins og allir framhaldsskólanemarnir í FÍV ætla að gera líka!

Kv. Sigþóra


Kjósunóttin ógurlega!!!

Gó Magni... gó Magni!!!

Magni og Toby geggt sexý....!

Nú er bara spurningin... held ég mér vakandi til að kjósa trilljón sinnum í nóttinni???


Undirbúningurinn á fullu!

Haldiði að ég hafi ekki fengið þessi líka fínu jakkafótin á Guðmund... og hann valdi þau sjálfur... og svo valdi hann bleika skyrtu með bleiku og gráu bindi! Smekkstrákur á ferðinni... og svo vantaði líka skó... en fékk þá heimlánaða.  Set inn mynd af honum í fötunum þegar ég nenni!

Nú Dúddí var svo yndisleg að lána mér brúðarmeyjarkjól á Guðný... hann var bara geggjaður... en allt of lítill. Guðný var nú ekki tilbúin í að viðurkenna að hann væri of lítill.... þrátt fyrir að geta ekki hreyft sig í alltof stuttum kjólnum! En Dúddí klikkar ekki... er á leiðinni út og ætlar að finna stærri fyrir mig eða Guðný. Hún á víst að vera í honum!!!

Svo gerði ég það gott í vinnunni... gekk frá nánast öllum ráðningum í Féló í dag.

Ji hvað ég er dugleg.... það er svo erfitt að vera ég!!!


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband